Prjónahópur úr Ljósinu hefur síðustu mánuði prjónað lítil hjörtu og hafa nú afhent afraksturinn til Neistans, styrktarfélags hjartveikra barna.
Hugmyndin með hjörtunum er að foreldrar fái hjarta þegar kemur í ljós að barnið þeirra er með meðfæddan hjartagalla. Foreldarnir geta verið með hjörtun inná sér þegar þau eru með börnunum sínum á spítalanum og þegar þau þurfa að fara geta þau skilið hjörtun eftir í vöggunni hjá barninu. Hjörtun eru þá með lykt foreldanna og veita barninu öryggi þegar foreldrarnir þurfa að fara.


Prjónahópurinn hittist í Ljósinu á miðvikudögum á milli 9:00-12:00 og vinnur þá oft að samfélagslegum verkefnum. „Það gefur þeim tilgang að skapa eitthvað og gefa til baka“, segir Louisa Sif Mønster, iðjuþjálfi hjá Ljósinu sem leitt hefur verkefnið.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






