Styrkur frá golfmóti rennur í Gunnusjóð Ljóssins

Við fengum frábæra heimsókn í Ljósið á föstudaginn þegar Guðlaugur Magnússon afhenti Ljósinu styrk að upphæð 710.000 kr. Styrkurinn safnaðist á golfmóti sem Guðlaugur stóð fyrir á Grafarholtsvelli föstudaginn 3. júlí.

Að ósk Guðlaugs rennur hluti af styrknum í Gunnusjóð, sem stofnaður var til minningar um Guðrúnu Ögmundsdóttur, alþingiskonu og borgarfulltrúa. Hlutverk sjóðsins er að styðja sérstaklega við þjónustuþega Ljóssins sem hafa minna á milli handanna og auðvelda þeim að nýta sér þá þjónustu sem er gjaldskyld samkvæmt verðskrá.

Við sendum Guðlaugi okkar innilegustu þakkir fyrir þetta dýrmæta framlag í starf Ljóssins.

Á myndinni eru Guðlaugur Magnússon og Áslaug Helga Aðalsteinsdóttir, sjúkraþjálfari í Ljósinu.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.