Það styttist í einn skemmtilegasta viðburð sumarsins, sólstöðumót Guðlaugs (Lauga) sem haldið verður til styrktar Ljóssins.
Mótið verður haldið á Grafarholtsvellinum föstudaginn 3. júlí. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir golfáhugafólk að sameina leikgleði og góðgerðarmál í góðum félagsskap og á skemmtilegum golfvelli.
Allur ágóði rennur óskiptur til Ljóssins og því góð ástæða til að mæta, spila og styrkja mikilvægt starf.
📍 Staðsetning og tímasetning
- Hvar? Grafarholtsvöllur (Golfklúbbur Reykjavíkur – GR)
- Hvenær? Föstudagur 3. júlí kl. 18:45
- Byrjað verður á máltíð í klúbbhúsinu kl. 18:45 (ath hver greiðir fyrir sig)
- Að því loknu verður ræst út í punktamóti með 18 holum kl. 20:00
Við þökkum Golfklúbbi Reykjavíkur kærlega fyrir að leggja málefninu lið og veita völlinn að kostnaðarlausu. Einnig viljum við þakka Guðlaugi Magnússyni fyrir að skipuleggja þetta skemmtilega golfmót á hverju ári, algjör snillingur!
🏌️♀️ Hverjir geta tekið þátt?
- Mótið er opið öllum, bæði félagsmönnum GR og öðrum. Mótsgjaldið er það sama fyrir alla:
13.000kr - Þeir sem þurfa golfbíl af heilsubótarástæðum geta fengið slíkan, en golfbílarnir eru eingöngu ætlaðir þeim sem eiga erfitt með gang.
💳 Skráning og greiðsla
- Mótsgjald: 13.000 kr.
- Greiðslureikningur: 526-26-290366
- Kennitala: 290366-3649
- Staðfesting sendist á: laugim66@gmail.com
Vinsamlegast leggið mótsgjaldið inn fyrir mót og sendið netpóst með:
- Nöfnum keppenda
- Forgjöf hvers og eins
Við hlökkum til að sjá þig í Grafarholti 3. júlí!

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






