Við höfum fengið nokkrar fyrirspurnir um hvernig hægt sé að styrkja þá hlaupara sem hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu þann 22. ágúst. Hér fyrir neðan eru einfaldar leiðbeiningar:
Skref 1: Farðu inn á hlaupastyrkur.is
Skref 2: Veldu „Góðgerðarfélögin“

Skref 3: Leitaðu að „Ljósið“ og veldu félagið

Skref 4: Skrollaðu niður síðuna. Þar sérðu bæði einstaklinga og hópa sem safna fyrir Ljósið.
Skref 5: Til að finna ákveðinn einstakling skaltu velja „Sjá alla hlaupara“. Til að finna hóp skaltu velja „Sjá alla hópa“.

Skref 6: Leitaðu að nafni eða skrollaðu niður listann þar til þú finnur réttan einstakling eða hóp og smelltu á viðkomandi.

Skref 7: Veldu græna hnappinn „Heita á þennan hlaupara“ eða „Heita á þennan hóp„. Þá opnast gluggi þar sem þú fyllir út nafn, skilaboð og upphæð.

Skref 8: Veldu „Staðfesta“.
Skref 9: Smelltu á „Ganga frá kaupum“.
Skref 10: Veldu „Ganga frá greiðslu“ og fylltu út kortaupplýsingar.
Skref 11: Smelltu á „Greiða“.
Skref 12: Til hamingju! Þú hefur styrkt hlauparann/hópinn og um leið stutt við starfsemi Ljóssins.
Hjartans þakkir fyrir stuðninginn, hvert framlag skiptir máli!
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






