Nemendur í Verzlunarskóla Íslands safna 700.000 kr

Góðgerðarráð NFVÍ (Nemendafélags Verzlunarskóla Íslands) safnaði glæsilegum styrk, alls 700.000 kr., til styrktar Ljósinu. Ákvörðunin um að styrkja Ljósið kom bæði frá ráðinu sjálfu og samnemendum þeirra, en þegar leitað var eftir hugmyndum að mikilvægu málefni kom Ljósið hvað oftast upp.

 

Fjáröflunin fór fram með fjölbreyttum og skemmtilegum hætti, meðal annars með styrkjum frá fyrirtækjum og áheitum tengdum ýmsum áskorunum sem hópurinn tók sér fyrir hendur. Þar má nefna morgunsjósund með Gumma Emil, að eyða heilum degi í MR, keyra hringinn í kringum landið og margt fleira.

Við hjá Ljósinu viljum hjartanlega þakka Góðgerðarráði NFVÍ fyrir hlýhuginn og stuðninginn. Styrkurinn skiptir okkur miklu máli á þessum tíma þar sem við erum að safna fyrir húsgögnum og tækjum í nýja húsnæði Ljósins í Gylfaflöt 5.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.