Blár mars í Grensáskirkju – dagskrá

Okkur í Ljósinu bárust þær ánægjulegu fréttir að í Grensáskirkju verður haldinn svokallaður Blár mars, þar sem málefni karla og krabbameins verða í forgrunni. Mánuðurinn er jafnframt tileinkaður stuðningi við Ljósið og Krabbameinsfélagið, og gefst gestum tækifæri til að leggja málefnunum lið.

Fyrir hönd okkar í Ljósinu, hjartans þakkir fyrir þetta fallega framtak og þann hlýja stuðning sem okkur er sýndur.

Dagskráin í Grensáskirkju verður fjölbreytt og lífleg, m.a. söngur, fræðsla, vöfflusala, skemmtidagskrá og tónleikar. Dagskráin hefst á æskulýðsdaginn, sunnudaginn 1. mars, með æskulýðsmessu kl. 11:00 og tónleikum kl. 12:30.

Hægt er að kynna sér dagskrána í heild hér að neðan.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.