Í febrúar verður nýtt pop-up námskeið, Í myndum og mildi.
Námskeiðið snýst um að læra að sýna sjálfum sér meiri sjálfsmildi í daglegu amstri, með ljósmyndir sem verkfæri til íhugunar og tjáningar. Þátttakendur taka myndir úr daglegu lífi og aðstæðum til að miðla upplifun, tilfinningum, skoðunum og þörfum. Í tímum er lögð áhersla á fræðslu, umræðu og öruggt rými.
Námskeiðið hefst mánudaginn 23. febrúar kl. 13:30-15:30 og er í 2 skipti. Umsjón með námskeiðinu hafa Lilja Dögg Hjaltadóttir, BCs í iðjuþjálfun, og Aldís Anna Höskuldsdóttir, BCs í iðjuþjálfun.
Markmið námskeiðsins er að styðja þátttakendur í að staldra við, skoða eigin upplifun af daglegu lífi og læra að mæta sjálfum sér með meiri mildi, skilningi og raunsæi. Ljósmyndir eru nýttar sem leið til að dýpka sjálfsskilning og auðvelda tjáningu.
Umfjöllunarefni:
- Streita og streitustjórnun í daglegu lífi
- Sjálfsmildi og sjálfstal
- Iđjujafnvægi
- Ljósmyndarými (e. Photovoice) sem verkfæri til tjáningar
Ávinningur fyrir þátttakendur er meðal annars sá að fyrir marga er auðveldara að sýna og segja frá með ljósmyndum en að setja allt í orð. Þegar fólk fær tækifæri og verkfæri til að segja sína sögu getur það aukið skilning, styrkt eða breytt viðhorfum og stuðlað að jákvæðum breytingum, bæði hjá einstaklingnum sjálfum og innan hópsins.
Námskeiðið hentar þeim sem vilja staldra við í öruggu og rólegu rými, skoða daglegt líf sitt með nýjum augum og læra að mæta sjálfum sér af meiri mildi. Engar kröfur eru gerðar um frammistöðu, skapandi hæfni eða að deila meiru en hver og einn kýs.
Skráning á námskeiðið er í afgreiðslu Ljóssins eða í síma 561-3770. Hámarks fjöldi eru 10 manns.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






