Laugardaginn 13. desember kl. 14:00 verður haldið árlegt jólauppboð í Góða hirðinum og allur ágóði rennur óskiptur til Ljóssins. Á uppboðinu verða ýmis dýrgripir boðnir upp og enginn annar en tónlistarmaðurinn KK stýrir gleðinni sem uppboðsstjóri. Á staðnum verður einnig Möndluvagninn með ilmandi möndlur til að fullkomna jólastemninguna.
Við viljum senda Góða hirðinum okkar hjartans þakkir fyrir að styðja Ljósið með þessu fallega framtaki. Hlökkum til að sjá sem flesta og eiga notalega stund saman!
Hægt er að sjá meira um viðburðinn hérna.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






