Það er mikilvægt að gefa sér tíma til að hlúa að sér í desember, og þess vegna ætlum við að bjóða upp á tvo auka tíma í slökun!
- 8. desember (mánudagur) kl.10:30
- 15. desember (mánudagur) kl.13:30
Hver tími er 35-45 mínútur.
Slökun er góð leið til að auka vellíðan, draga úr álagi, bæta svefn og auka lífsgæði. Þátttakendur koma sér þægilega fyrir á dýnu eða stól og þurfa ekkert að aðhafast annað en að slaka á og hlusta á rödd þess sem leiðir. Þátttakendur verða leiddir inn í djúpa slökun og sleppa algjörlega tökum á allri spennu, þreytu og streitu.
Skráning í afgreiðslu eða hjá þjálfurum.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






