Mánudaginn 20.október ætlum við að bjóða upp á auka tíma í slökun kl. 13:30.
Þátttakendur koma sér þægilega fyrir á dýnu eða stól og þurfa ekkert að aðhafast annað en að slaka á og hlusta á rödd þess sem leiðir. Þátttakendur verða leiddir inn í djúpa slökun og sleppa algjörlega tökum á allri spennu, þreytu og streitu.
Slökun er góð leið til að auka vellíðan, draga úr álagi, bæta svefn og auka lífsgæði.
Skráning fer fram í móttöku Ljóssins og hjá þjálfurum.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






