Samfélag sem byggir mann upp

Gyða Jónsdóttir greindist með krabbamein í vinstra brjósti snemma árs 2023. Það var mikið högg – en á þeirri vegferð sem tók við fann hún að styrkur og stuðningur eru ómetanleg. Haustið 2023, þegar hún var nýbúin með lyfjameðferð og stóð frammi fyrir geislameðferð, ákvað hún að leita í Ljósið – þar sem uppbygging, hlýja og fagleg þekking tóku við.

„Ég vildi fá stuðning við að byggja mig upp líkamlega,“ segir Gyða. „Ég fann strax hvað það skipti máli að vera innan um fagfólk sem hefur bæði sérfræðiþekkingu og skilning á því hvernig krabbameinsmeðferð hefur áhrif á líkamann.“

 

Heildræn nálgun – faglegur stuðningur og vinalegt andrúmsloft
Gyða segir að endurhæfingin í Ljósinu hafi haft djúp áhrif á líðan sína og bataferli. Hún fékk heilsufarsmælingar hjá Fríðu, nýtti sér nudd, sogæðameðferð hjá sjúkraþjálfara og ýmsa aðra þjónustu sérfræðinga Ljóssins með mikla innsýn í ferlið sem fólk gengur í gegnum eftir krabbamein.

„Það sem kom mér mest á óvart voru gæðin og aðgengið að heildstæðri þjónustu – og hvað það var notalegt að þurfa ekki alltaf að kynna sig og aðstæður sínar upp á nýtt. Það er gríðarlega þægilegt að geta sótt ólíka þjónustu á einum stað, þar sem manni líður vel.“

Hún segir einnig að hvatningin sem hún fékk í mælingum hafi skipt sköpum: „Mér fannst mikilvægt að geta rætt við fagaðila hvernig ég væri að auka styrk og þrótt. Þegar ég upplifaði bakslag eða óvæntar aukaverkanir, þá var alltaf hægt að fá góð ráð.“

 

Ljós í einmannaleika og vin í eyðimörk
Gyða segir að það hafi komið henni á óvart hversu einmannalegt það getur verið að greinast með krabbamein. Því hafi Ljósið reynst henni sannkölluð vin í eyðimörk, örugg höfn þar sem samkennd og samhugur ríkja.

„Það er svo dýrmætt að geta komið í Ljósið og hitt einstaklinga í sömu stöðu, deilt reynslu og þegið ráð. Þetta er ekki bara fagleg þjónusta – þetta er samfélag sem byggir mann upp.“

Hún segir jafnframt að hún hefði viljað vita strax í byrjun hvað Ljósið er vinalegur og dýrmætur staður. „Það er mikið framboð af þjónustu og svo mikill friður sem fylgir því að mæta þangað.“

 

Kraftur í líkama og sál – og hlýr klútur með í för
Að hennar mati ættu sem flestir að stunda endurhæfingu eftir veikindi. „Andlegt jafnvægi og líkamlegur styrkur eru lykill að góðu lífi og veikindi ýta undir meðvitund okkar um það. Ég var lánsöm að geta hreyft mig í gegnum allt ferlið og tel að það hafi flýtt bata mínum verulega.“

Aðspurð hvort hún sé meiri slæðu- eða taupokatýpa svarar hún hlæjandi: „Fyrir mig er það klúturinn – ég fer sjaldnast út úr húsi nema með klút, trefil eða hálsmen.“

Með þátttöku í átaksverkefni Ljóssins og Nettó getur fólk lagt sitt af mörkum og styrkt stað sem skiptir sköpum fyrir fjölda fólks í viðkvæmri stöðu.

„Það er ekkert sem stoppar mann en það er ómetanlegt að fá styrk og stuðning í vinalegu umhverfi. Ljósið er einstakt athvarf og við sem höfum notið þess vitum að það lýsir ekki aðeins upp erfið tímabil, það kveikir líka nýja von.“

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.