Færði Ljósinu styrk Oddfellow kvenna

Þóra, Rebekkustúka Oddfellow númer 9 veitti Ljósinu veglegan styrk í kjölfar þess að Jenný Dagbjört Gunnarsdóttir hélt erindi. Jenný deildi þar sinni reynslusögu af endurhæfingunni í Ljósinu og þeim jákvæðu áhrifum sem starfið hafði á hennar líf, bæði samhliða meðferðum en einnig eftir að hún sneri aftur til vinnu.

Í morgun leit Jenný við hjá okkur á Langholtsveginum og færði Ernu Magnúsdóttur, framkvæmdastýru Ljóssins, styrkinn formlega.

Við sendum okkar bestu þakkir til Jennýjar og allra Oddfellowkvenna.

Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Ljóssins, ásamt Jennýju Dagbjörtu við afhendingu styrksins

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.