Himinsælir vinningshafar dregnir út í Ljósavinaleiknum

Það má með sanni segja að það hafi verið spenna í loftinu þegar dregnir voru út tveir vinahópar úr Ljósavinaleiknum í gær. Hóparnir heppnu hrepptu gleðistund með sínum dýrmæta hóp. Það voru skemmtileg símtölin hjá kynningarteymi Ljóssins þegar vinningshafarnir fengu tíðindin og gleðin smitaði allt um kring.

Hóparnir tveir sem voru dregnir út eru:

FXS hópurinn sem fer í gleðistund innanlands. Það er gisting með morgunverði og SPA fyrir 6 á Centerhotel Granda, gjafabréf frá Dineout og karaoke á Pablo Discobar.

MP hópurinn fékk flugmiða fyrir 4 frá Playair til Kanarí.

Við þökkum öllum þeim sem tóku þátt í leiknum fyrir sitt framlag og óskum vinningshöfunum enn og aftur til hamingju og góðrar skemmtunar í þeim ævintýrum sem eru handan við hornið. Einnig þökkum við þeim góðu styrktaraðilum sem lögðu okkur lið með þessum glæsilegu verðlaunum.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.