Kæru Ljósavinir,
Frá upphafi hefur stuðningur einstaklinga við endurhæfingarstarf Ljóssins skipt gríðarlegu máli. Ykkar framlag hefur leyft starfinu vaxa og bætt þannig lífsgæði krabbameinsgreinda með faglegri heildrænni endurhæfingu og stuðningi sem á sér fáan eða engan líkan.
Mánaðarlega sækja yfir 600 manns þjónustu í Ljósið, ýmist í viðtöl við fagaðila, námskeið, fræðslu, líkamlega endurhæfingu, handverk og fleira. Með ykkar stuðningi sáum við okkur fært að umbreyta þjónustu okkar í gegnum heimsfaraldurinn, stíga í áttina að stafrænni endurhæfingu og höldum áfram veginn í þá átti
Við höfum vaxið hratt og farið í gegnum ótal breytingar síðastliðin 18 ár en með gleði og grósku að leiðarljósi stefnum við enn lengra.
Stuðningur þjóðarinnar er starfinu ómetanlegur!
Nú um mánaðarmótin birtast eingreiðslur í heimabanka árlegra Ljósavina að upphæð 4500 krónur.
Takk enn og aftur fyrir að vera Ljósavinur og taka þannig þátt í að veita krabbameinsgreindum Íslendingum faglega endurhæfingu og stuðning.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.