Námskeiðin í Ljósinu eru nú að fara aftur af stað hvert á fætur öðru. Fagaðilar eru að hafa samband við alla þá sem voru á námskeiðum í Ljósinu þegar þjónusta var skert og upplýsa um nýtt fyrirkomulag námskeiða og gefa leiðbeiningar.
Frá og með næstu viku ættu því eftirfarandi námskeið að halda áfram með breyttu sniði:
- Námskeið nýgreindar 36-48 ára
- Námskeið nýgreindar 60 ára og eldri
- Námskeið fyrir fólk greint í annað sinn
- Fræðsla – stuðningur opið Konur 16-35 ára
- Námskeið nýgreindar 49-59 ára
- Námskeið fyrir fólk með langvinnt krabbamein
- Aftur til vinnu eða náms
- Námskeið fyrir fullorðna aðstandendur 20 ára og eldri
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.