Hvað skal taka með í Ljósafoss? var spurningin sem brann á vörum Guðnýjar Ragnarsdóttur og Sólveigar Kolbrúnar þegar þær mættu í Fjallakofann í gær og ræddu hvað þarf að koma með í Ljósafossinn í dag.
Guðný hefur farið víða fyrir Ljósið þessa viku til þess að vekja athygli á hvað endurhæfingin skiptir gríðarlega miklu máli þegar maður fer í gegnum krabbameinsmeðferð og í dag þakkar hún Ljósinu fyrir þrekið sem hún hefur og nýtir til þess að þvera landið.
Í dag hefur Guðný gengið 550 kílómetra á samtals 19 dögum!
Auðvitað fengum við því Guðnýju með okkur í lið til að fara yfir hvað við þurfum að hafa með okkur og í myndbandinu hér fyrir neðan förum við yfir hvort við megum kaupa mannbrodda í Bónus, er í lagi að nota barða mikla hatta í stað húfu og hvort höfuðljós þurfi að vera ótrúlega birtumikil.
Fyrir okkur öll er einnig gott að hafa smá gátlista og hér kemur listinn hennar Guðnýjar:
- Ullarnærföt
- Hlífðarbuxur
- Hlý primaloft, dúnyfirhöfn, eða lopapeysa undir goretex flík
- Húfa
- Góðir vettlingar
- Broddar
- Höfuðljós
- Góða skapið
- Göngustafir
- Myndavél/sími
Já og ekki gleyma myllymerkinu bætir Guðný við #ljosafoss2019 og bæta okkur í færslurnar með @ljosid_endurhaefing á Instagram.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem allra flest í dag!
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.