Kæru vinir,
Senn líður að jólum og því höldum við hátíðlegt aðventukvöld Ljóssins miðvikudaginn 27. nóvember klukkan 19:30.
Á jólakvöldinu hittast ljósberar, aðstandendur og starfsfólk Ljóssins og eiga saman notalega stund.
Sem áður verður spennandi dagskrá:
- Óskar Guðmundsson les úr nýjustu bók sinni Boðorðin
- Guðrún Árný mun syngja nokkur jólalög
- Handverkssalan verður á sínum stað
- Girnilegar veitingar í boði
Við hlökkum til að sjá ykkur og eiga með ykkur notalega kvöldstund.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.