Bergmál með sultu- og jólakortasölu í Ljósinu 19. nóvember

Þriðjudaginn 19. nóvember n.k. fáum við góða gesti í heimsókn til okkar í Ljósið. Það eru forsvarsmenn Bergmáls, líknar- og vinafélags, en tilgangur félagsins er m.a. að hlúa að krabbameinsgreindum.  Heimsókn þeirra er jafnframt liður í fjáröflun félagsins og því koma þau hlaðin gómsætum sultum og hugsanlega einhverju fleiru sem þau bjóða gestum og gangandi að kaupa.

Þetta er í þriðja sinn sem Bergmál kemur til okkar með fjáröflunarsölu og síðast rann allur ágóði til styrktar Ljósberum.

Við hvetjum allt sultuáhugafólk, krabbameinsgreinda, aðstandendur og aðra velunnara að líta við á Langholtsveginum þann 19. nóvember á milli kl. 12:30 – 15 og kaupa sér sultu og styrkja um leið það góða málefni sem Bergmál er.

 

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.