Miðvikudaginn 17. maí ætlum við að ganga strandlengjuna við Straumsvík.![](https://ljosid.is/wp-content/uploads/2017/02/utivistarhopur-2017-300x169.jpg)
Hittumst í Ljósinu kl. 12.30 eða á bílastæðinu við burstabæinn Straum kl. 13.00. Við sleppum ekki kaffisopanum góða, mörg góð kaffihús í Hafnarfirði í boði eftir gönguna.
Hlökkum til að sjá ykkur.