Takk fyrir frábærar viðtökur – við erum í sjöunda himni!
Salan á skarti sem skiptir máli – Ljósið x Hlín Reykdal – hefur farið fram úr okkar björtustu vonum og við erum innilega þakklát fyrir allan þann hlýhug og stuðning sem þið hafið sýnt Ljósinu.
Vinsældirnar fóru fram úr væntingum
Viðtökurnar hafa verið svo góðar að skartið er nú uppselt!
Það er einfaldlega til marks um þann kraft sem fylgir því þegar samfélagið slær skjaldborg um góðan málstað og fyrir það erum við óendanlega þakklát.
Skráðu þig á biðlista
Ef þú vilt tryggja þér skart sem skiptir máli þegar næsta sending kemur þá er einfalt að tryggja sér sæti á biðlista og við höfum samband. Athugið að gera má ráð fyrir að næsta sending komi til okkar eftir sumarið.
Skráning hér: Biðlisti eftir skarti – Ljósið x Hlín Reykdal
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






