Nemendur Vogaskóla styrkja Ljósið

Í gær fengum við frábæra heimsókn í Ljósið frá nemendum í 10. bekk í Vogaskóla.

Nemendurnir tóku þátt í Fjármálaleikunum, landskeppni grunnskóla í fjármálalæsi, þar sem þau náðu frábærum árangri og lentu í 3. sæti. Í kjölfarið fengu þau tækifæri til að velja félag til að styrkja og varð starf Ljóssins fyrir ungt fólk fyrir valinu.

Við viljum færa nemendum og starfsfólki Vogaskóla innilegar þakkir fyrir stuðninginn, hlýhuginn og þetta fallega framtak.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.