Jafningjahópur kvenna 46+ heimsækir vinnustofu listakonu

Jafningjahópur fyrir konur 46 ára og eldri ætlar að heimsækja okkar ástkæru Þuríði Sigurðardóttur myndlistarkonu og söngkonu á vinnustofu hennar í Garðabæ, 6.maí kl. 13:00.

Við hittumst við innganginn á Hönnunarsafninu við Garðatorg og göngum saman að vinnustofu hennar sem er á bak við safnið.

Að venju förum saman á kaffihús á eftir.

Vinsamlegast skráið þátttöku í afgreiðslu Ljóssins í síðasta lagi 5. maí.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.