28.04.2025 By Solla Comments are Off
Ljósið er eina endurhæfingarmiðstöðin á Íslandi sem býður upp á sérhæfða endurhæfingu fyrir þau sem greinast með krabbamein, en í hverjum mánuði leita yfir 600 manns til okkar eftir stuðningi og fræðslu. Á bak við starfsemina standa Ljósavinir – ómetanlegur hópur sem gerir okkur kleift að bjóða upp endurgjaldslausa endurhæfingu í þeirri mynd sem hún er í dag.
Þegar þú gerist Ljósavinur, tekur þú virkan þátt í að breyta lífi fólks sem greinst hefur með krabbamein.
Þú styður beint við einstaklinga sem standa frammi fyrir einni af stærstu áskorunum lífsins og hjálpar þeim að finna styrkinn til að halda áfram. Þú verður hluti af því að veita þjónustu sem er að mestu leyti án endurgjalds, en hefur ómetanlegt gildi fyrir þau sem á henni þurfa að halda.
Hvað gera Ljósavinir?
Ljósavinir gera það til að mynda mögulegt að:
-
Greiða námskeiðs- og fræðslukostnað fyrir þau sem greinast með krabbamein.
-
Veita börnum, sem eru aðstandendur krabbameinsgreindra, tækifæri til að taka þátt í námskeiðum sem styðja þau í gegnum erfiðan tíma.
-
Tryggja aðgengi fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra að viðtölum hjá fagaðilum, svo sem sálfræðingum, iðjuþjálfum, sjúkraþjálfurum og fjölskyldumeðferðarfræðingum.
Af hverju skiptir þetta máli?
Þegar þú styrkir Ljósið, ert þú ekki aðeins að veita fjárhagslegan stuðning – þú ert að gefa von, hlýju og stuðning til þeirra sem þurfa mest á því að halda. Þú ert að hjálpa fólki að finna ljós í myrkrinu, að bæta lífsgæði sín og að takast á við nýjan veruleika með reisn og styrk.
Við bjóðum þér að verða hluti af þessu einstaka samfélagi. Með því að gerast Ljósavinur tekur þú þátt í að skapa betri framtíð fyrir þá sem þurfa á Ljósinu að halda. Það er ekki bara stuðningur – það er kærleikur í verki.
Vertu Ljósavinur í dag!
Smelltu hér til að gerast Ljósavinur og hjálpaðu okkur að halda áfram að lýsa upp líf þeirra sem þurfa á okkur að halda. Saman getum við gert kraftaverk
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.