Varst þú að greinast?

Spjall og styrking eru opnir tímar fyrir allt fólk sem nýlega hefur greinst með krabbamein og er vettvangur til að hitta aðra í sambærilegum aðstæðum og fá stutta fræðslu um margvísleg málefni og umræður um bjargráð. Tækifæri gefst fyrir umræður og þannig stuðning til að takast á við breytt lífsskilyrði í kjölfar veikinda.

Markmið námskeiðisins er að þau sem nýgreind eru með krabbamein fái fræðslu, umræður og vandaða fyrirlestra ásamt stuðning til að takast á við breytt lífsskilyrði í kjölfar veikinda og létt geta undir í uppbyggingarferlinu. Þeir fagaðilar sem flytja erindi hafa allir unnið með krabbameinsgreindum og hafa víðtæka reynslu og skilning á aðstæðum þátttakenda. Umsjón með fræðslunni er í höndum iðjuþjálfa, en aðrir sérfræðingar flytja einnig erindi.

 

Námskeiðið hefst 13. júní og verður á fimmtudögum kl. 10:30 – 12:00. 

Fræðslan er þátttakendum að kostnaðarlausu og hægt er að finna frekari upplýsingar hér eða með því að hringja í móttöku Ljóssins í síma 561-3770.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.