Árshátíð Bergmáls 2024

Laugardaginn 24. febrúar standa vinir okkar hjá styrktar- og líknarfélaginu Bergmáli fyrir árlegri árshátíð sinni.

Eins og margir vita veitir Bergmál ljósberum mikinn stuðning í margvíslegu formi og ber þar helst að nefna árlega orlofsviku þar sem þjónustuþegum Ljóssins stendur til boða að hvílast í heila viku að kostnaðarlausu í heilandi umhverfi Sólheima í Grímsnesi.

Von er á góðum gestum á árshátíðina að vanda en viðburðurinn fer fram í safnaðarsal Háteigskirkju og hefst klukkan 18:00 og áætlað er að hefja kvöldverð klukkan 19:00.

Miðinn kostar 6000 krónur og bókast með því að senda póst á bergmal@simnet.is

Næg bílastæði og lyfta í húsakynnum.

Allir innilega velkomnir.

Vert er að nefna að Bergmál er sjálfboðastarf og hefur undanfarin 30 ár veitt yfir 3500 manns þjónustu. Árshátíðin er eini viðburður félagsins sem greitt er fyrir.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.