Hvetjum saman í Reykjavíkurmaraþoninu

Hvetjum saman 2023 – Ljósið býður í klappveislu!

Eins og undanfarin ár verður klapplið Ljóssins á sínum stað til að hvetja okkar frábæru hlaupara til dáða í Reykjavíkurmaraþoninu. Við munum koma okkur fyrir við JL húsið á mótum Hringbrautar og Eiðisgranda. Þar munum við hvetja og hafa læti eins og okkur er einum lagið en gera má ráð fyrir að fyrstu hlauparar séu að fara framhjá okkur um klukkan 9:00. 

Gaman væri ef klappliðið myndi mæta í Ljósalitunum, rauðu og hvítu en einnig verðum við með til láns sérmerkta boli.  Að sjálfsögðu er fólk hvatt til að mætta með ásláttargræjur af öllu tagi; potta, dósir, sleifar, hrossabresti eða flautur svo eitthvað sé nefnt og að ógleymdu góða skapinu.

Hér er hægt að melda sig í viðburðinn á Facebook og koma sér hvatningargírinn fyrir 19. ágúst!

Ef við getum, hvetjum!

Við hlökkum til að sjá ykkur sem allra, allra flest!

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.