Betra skipulag og bætt líðan með Virpi Jokinen

Miðvikudaginn 30. nóvember klukkan 14:00 mun Virpi Jokinen, fyrsti vottaði skipuleggjandinn (e. Professional Organizer) hér á landi, halda erindi í Ljósinu.

Við erum sífellt að takast á við breyttar aðstæður sem hafa oft í för með sér ofgnótt af hlutum. Og stundum er ekki auðvelt að eiga við þetta allt, að minnsta kosti ekki ein og óstudd. Skipulagsleysi getur endurspeglast í líðan; þegar maður hugsar um tiltekt en veit ekki hvar á að byrja og manni fallast hreinlega hendur.

Virpi fjallar mikið um áskoranir þess að sleppa tökunum en það er oft prófsteinninn í skipulags- og tiltektarverkefnum. Virpi tekur sjálfa sig ekki of alvarlega og leitast við að hafa öll erindin létt og aðgengileg.

Megináhersla erindisins er á hvernig skipulag nýtist sem verkfæri í átt að bættri líðan og á mikilvægi þess að skoða raunverulegar þarfir okkar og langanir hér og nú og aðgreina þær frá þörfum og löngunum liðinna tíma.

Virpi vonast til að bæta líðan og létta lund þátttakenda og fjallar um alla þá þætti sem eru sammannlegir og sem flestir kannast við en sem okkur hættir stundum til að halda að hái engum í heiminum nema okkur sjálfum.

Virpi Jokinen er finnsk, tveggja barna móðir, hefur búið á Íslandi í þrjá áratugi og talar íslensku reiprennandi. Hún er menntuð í myndlist og leiðsögn, lauk skipuleggjandanámskeiði í Helsinki haustið 2018 og er með diplómu á meistarastigi í jákvæðri sálfræði frá Endurmenntun Háskóla Íslands.

Markmið Virpi er að allir sem hlusta á erindi hennar fái svör við sem flestum af spurningum sínum og fari til síns heima eða til sinna starfa með hugmynd um fyrstu skrefin í áttina að skýrara, léttara og einfaldara hversdagsskipulagi.

Skráning fer fram á netinu – Smelltu hér til að skrá þig!

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.