Fjölskylduganga Ljóssins miðvikudaginn 1. júní – Lokað í Ljósinu

Loksins er komið að árlegu fjölskyldugöngu Ljóssins en hún mun fara fram miðvikudaginn 1. júní.

Það kemur kannski ekki á óvart en gengið verður á uppáhaldsfjallið okkar, Esjuna! Lagt verður af stað í fjallið kl.11:00 frá grunnbúðum Ljóssins við Esjurætur þar sem hver gengur á sínum hraða. Athugið að einungis verður gengið upp að brú en ekki upp að Steini.

Starfsfólk Ljóssins mun að venju dreifa sér um hlíðarnar og vera til aðstoðar ef þörf er á.

Þeir sem treysta sér ekki til að ganga eru eindregið hvattir til að mæta og spjalla, ásamt því að njóta þess að vera úti við rætur fjallsins.

Vinsamlegast athugið að Ljósið verður lokað þennan dag.

Mikilvægt er að klæða sig eftir veðri og gott er að hafa drykkjarvatn og göngustafina með í för.

Settu gönguna í dagatalið þitt á Facebook með því að smella hér.

Allir velkomnir.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.