Lokað vegna fjölskyldugöngu Ljóssins miðvikudaginn 9. júní

Við minnum alla á að á morgun miðvikudaginn 9. júní er lokað í Ljósinu vegna fjölskyldugöngu Ljóssins.

Við hlökkum til að sjá sem flesta með okkur í fjallið en gengið verður af stað á Esjuna kl. 11 frá grunnbúðum Ljóssins við Esjurætur þar sem hver gengur á sínum hraða og eins langt og þeir treysta sér til. Í ár göngum við ekki uppp að Steini heldur einungis upp að vegamótum.

Starfsfólk Ljóssins mun að venju dreifa sér um hlíðarnar og vera til aðstoðar ef þörf er á.

Þeir sem treysta sér ekki til að ganga eru eindregið hvattir til að mæta og spjalla og njóta þess að vera úti við rætur fjallsins.

Klæðið ykkur eftir veðri og gott er að hafa drykkjarvatn og göngustafina með

Settu gönguna í dagatalið þitt á Facebook með því að smella hér.

Allir velkomnir.

Við opnum aftur hress og kát að fimmtudagsmorgun og hlökkum til að sjá ykkur.

* Vinsamlegast athugið að til stóð að ganga nýja skógarleið í ár en eftir nánari athugun var ákveðið að gengið yrði hefðbundna leið en þó yrði ekki gengið lengra en upp að svokölluðum vegamótum. Við göngum því EKKI upp að Steini í ár.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.