Fjölskylduganga Ljóssins miðvikudaginn 9. júní

Loksins er komið að árlegu fjölskyldugöngu Ljóssins en hún mun fara fram miðvikudaginn 9. júní.

Það kemur kannski ekki á óvart en gengið verður á uppáhaldsfjallið okkar, Esjuna! Lagt verður af stað í fjallið kl. 11 frá grunnbúðum Ljóssins við Esjurætur þar sem hver gengur á sínum hraða og eins langt og þeir treysta sér til.

Starfsfólk Ljóssins mun að venju dreifa sér um hlíðarnar og vera til aðstoðar ef þörf er á.

Þeir sem treysta sér ekki til að ganga eru eindregið hvattir til að mæta og spjalla og njóta þess að vera úti við rætur fjallsins.

Vinsamlegast athugið að Ljósið verður lokað þennan dag.

Klæðið ykkur eftir veðri og gott er að hafa drykkjarvatn og göngustafina með

Settu gönguna í dagatalið þitt á Facebook með því að smella hér.

Allir velkomnir.

 

* Vinsamlegast athugið að til stóð að ganga nýja skógarleið í ár en eftir nánari athugun var ákveðið að gengið yrði hefðbundna leið en þó yrði ekki gengið lengra en upp að svokölluðum vegamótum. Við göngum því EKKI upp að Steini í ár.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.