Miðfellshlaup til styrktar landsbyggðardeild Ljóssins

Horft til norðurs að Miðfelli í Hrunamannahreppi

Fyrr í vor fengum við þær fréttir að sveitafélag Hrunamannahrepps ætlar að setja á laggirnar nýtt hlaup fyrir íbúa sveitafélagsins og myndi hlaupið í ár vera tileinkað nýstofnaðri landsbyggðardeild Ljóssins. Hlaupið, sem ber heitið Miðfellshlaupið fer fram í lok hreyfiviku UMFI 29. maí næstkomandi og er hluti af átakinu Heilsueflandi samfélag í Hrunamannahreppi sem er ætlað að hvetja íbúa sveitafélagsins til reglulegrar hreyfingar.

Eins og fyrr segir er hlaupið tileinkað landsbyggðardeild Ljóssins sem ætluð er fólki sem býr á landsbyggðinni og er í krabbameinsmeðferð eða hefur lokið við krabbameinsmeðferð á undanförnum mánuðum. Auk þess að veita endurhæfingu í stafrænu formi er markmið með stofnun deildarinnar að auka samvinnu við þjónustu og fagaðila í heimabyggð, auka þannig þjónustu við krabbameinsgreinda í heimabyggð.

Hugmyndasmiðir hlaupsins eru Arnfríður Jóhannsdóttir og Kolbrún Haraldsdóttir

„Hugmyndin kviknaði í vetur með það að markmiði að hvetja fólk til að hreyfa sig meira og njóta alls hins góða sem hlýst af því. Samhliða því langaði okkur að leggja góðu málefni lið og fannst sjálfsagt að styðja við Ljósið enda forstöðukona Ljóssins, Erna Magnúsdóttir alin upp í Miðfellshverfinu. Við vildum leggja sérstaka áherslu á nýstofnaða landsbyggðardeild sem er virkilega þarft fyrir þá sem ekki geta sótt endurhæfingu í Reykjavík en þjónustan fer að miklu leyti fram rafrænt.“  segir Arnfríður Jóhannsdóttir.

 

Mismunandi vegalengdir fyrir góðan málstað

Vegalengdirnar sem hægt er að velja á milli eru 3km, 5km og 10km og rennur allur ágóði skráningargjaldsins til Ljóssins, en í skráningarferlinu er einnig boðið upp á frjáls framlög til Ljóssins.

Erna Magnúsdóttir, forstöðukona Ljóssins

„Við erum virkilega þakklát sveitafélagi Hrunamannahrepps fyrir þetta fallega framtak og ég sjálf ótrúlega snortin að þau vilji styðja við Ljósið í þessu fyrsta Miðfellshlaupi. Við ætlum auðvitað að koma og hvetja fólk áfram og gera Ljósið sýnilegt.“

Vefsíða okkar er alltaf opin, og einfalt að gerast mánaðarlegur styrktaraðili ásamt kostinum á beinum styrkjum. Smelltu hér til að gerast Ljósavinur. Allt fé sem safnast til Ljóssins nýtist til góðra verka.

Nánari upplýsingar um hlaupið er á Facebooksíðu viðburðarins hér.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.