Markþjálfun hjá Ingibjörgu – Lausir tímar í maí

Vilt þú hjálp við að skilgreina markmið þín og fá aðstoð við að ná þeim?

Við eigum lausa tíma hjá Ingibjörgu Kr. Ferndinands, markþjálfa, á mánudögum og fimmtudögum í maí. Ingibjörg er vottaður ACC markþjálfi en í grunninn er hún menntunarfræðingur (M.Ed).

Umsögn um Ingibjörgu

Það var algjörlega frábært að setjast niður með Ingibjörgu. Ég fann það bara þegar ég fór að tala við hana hvað hugurinn á mér var út um allt. Eftir fyrsta tímann var ég búin að koma auga á það hvaða markmið ég vildi vinna að og leggja til hvernig ég ætlaði að byrja þá vegferð. En ég var ekki lengur ein því það var einhver sem var búinn að varða leiðina með mér. Algjörlega ómetanleg hjálp

– Kona 39 ára

Endurhæfingarferlið felur í sér margar áskoranir og er kjörið tækifæri til þess að hrista upp í vananum og setja stefnuna í þá átt sem þú vilt, með frábæran fagaðila þér við hlið.

Markþjálfun er samtalsaðferð sem miðar að því að hjálpa þér að skilgreina persónuleg markmið þín og finna hvaða skref eru mikilvægust að taka til að ná þeim markmiðum á sem skilvirkastan hátt.

Samtalið er í raun mjög áhugvert því það miðar að því að þú skiljir betur hver þú ert í raun og hvað það er sem fær þig til að stíga í rétta átt. Þú færð speglun á þig, gildi þín og viðhorf, og gætir uppgötvað nýja möguleika og jafnvel hliðar á þér sem þú vissir ekki af áður.

Alger trúnaður ríkir í tímunum sem taka um klukkustund.

Smelltu hér eða hafðu samband við móttöku Ljóssins í síma 561-3770.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.