Nemendur í textíldeild við Fjölbrautaskóla Suðurnesja saumuðu glæsilegar bleikar herraslaufur í tilefni af bleika deginum þann 11.október síðastliðinn. Slaufurnar voru seldar og rann ágóðinn óskiptur til Ljóssins.
Það var Anna Sigríður Jónsdóttir, iðjuþjálfi, sem veitti styrknum viðtöku.
Við sendum okkar bestu þakkir til þessara flottu nemenda og allra þeirra sem keyptu slaufu.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.