Nú er glatt á hjalla í Ljósinu og við notum hvert tækifærið til að setja handverkið í hátíðlegan brag.
Fram að jólum verðum við því með kennslu í því hvernig breyta má einföldum kertum í falleg listaverk. Kennslan verður í boði á miðvikudögum frá 9:30-12:30.
Við verðum með kerti á góðu verði sem og úrval af fallegum pappír. Ragnheiður verður ykkur til halds og trausts.
Við hvetjum þá sem áhuga hafa til að koma og eiga með okkur huggulega stund.
![](https://ljosid.is/wp-content/uploads/2018/11/Mix-Facebook-myndir-með-færslum-1-300x169.jpg)
Einfalt og hátíðlegt handverk
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.