Fræðslunámskeið fyrir fólk á öllum aldri sem er að greinast í fyrsta skipti og/eða greindust á síðastliðnu ári. Námskeiðið er grunnur að áframhaldandi fræðslu og námskeiðum í Ljósinu.

 

Markmið

Að fólk í svipuðum sporum fái fræðslu, taki þátt í umræðum og fái þannig stuðning til að takast á við breytingar í kjölfar greiningar. Þeir fagaðilar sem koma að námskeiðinu hafa allir unnið með krabbameinsgreindum. Umsjón með námskeiðinu hafa iðjuþjálfar í Ljósinu, en auk þeirra halda fagaðilar fyrirlestra um sín sérsvið og stýra umræðum.

 

Dagskrá

Á námskeiðinu verður fjallað um aðstæður og úrlausnir þegar það verða breytingar á lífinu, hvernig greining og meðferð geta haft áhrif á líða, hvernig hægt sé að efla eigin heilsu og mikilvægi þess að viðhalda og byggja upp orku og þrek, samskipti, nánd og kynhegðun og auðvitað hvernig við sköpum áhugaverða framtíðarsýn.

Þessi námskeið hafa skapað mikla samkennd og veitt þátttakendum mikinn jafningjastuðning í gegnum árin.

18. október Kynning á námskeiðinu – nýjar aðstæður, bjargráð og orkusparnaður – Berglind Ásgeirsdóttir iðjuþjálfi
25. október Venjur, rútínur og gildi – Guðrún Friðriks, iðjuþjálfi
1. nóvember Tilfinningaviðbrögð og aukin vellíðan – Elín Kristín Klar, MA sálfræði
8. nóvember Samskipti, tilfinningar og kynlíf – Áslaug Kristjánsdóttir, kyn- og hjúkrunarfræðingur
15. nóvember Mikilvægi þess að byggja upp orku og þrek – Erla sjúkraþjálfari
22. nóvember Markmið og framtíðin, samantekt á námskeiði – Berglind Ásgeirsdóttir, iðjuþjálfi

Næsta námskeið

Grunnfræðsla á ZOOM

Hefst 18.október
Þriðjudaga kl. 14:00 – 15:30
Umsjón: Berglind Ásgeirsdóttir og Erna Magnúsdóttir, iðjuþjálfar
Námskeiðin eru þátttakendum að kostnaðarlausu

Skráning og upplýsingar í síma 561-3770

SKRÁ Á NÁMSKEIÐ - FULLT