Ef þú ert að leita að djúpri slökun/hvíld, þá getur Yoga Nidra hjálpað þér.
Sex vikna námskeið, í streymi haustið 2026, um mikilvægi slökunar almennt, um leið kynnumst við:
1. Öndun,
2. Rólegum liðkandi æfingum,
3. Slökun
4. Jóga Nidra djúpslökun
Allt saman í gegnum iðkun á þessum sex vikum:
Við tengjum saman meðvitund um mikilvægi slökunar og hvernig við tileinkum okkur hana í daglegu lífi. Á þessum sex vikum færð þú stuðning til þess að byggja upp slökunarrútínu og kynnast og iðka Jóga Nidra djúpslökun.
Markmið námskeiðs er að þú náir að finna þína leið til þess að tileinka þér slökun sem hlut af þínu daglega lífi. Við byrjun rólega og lengjum og dýpkum iðkunina smám saman á þessum sex vikum.
Yoga Nidra felur í sér slökun liggjandi á jóga dýnu, á teppi, í rúminu eða í góðum stól, með höfuðstuðningi.
Hér fyrir neðan er hægt að horfa á tvö Jóga Nidra myndbönd og með því að smella hér má finna úrval af jóga myndböndum. Nú ættu öll að geta prufað sig áfram heima.
Jóga nidra í streymi
Hefst 25. september
Föstudagar kl. 11:30-12:30, í 6 skipti
Umsjón: Berglind Ásgeirsdóttir, iðjuþjálfi

