Reykjavíkurmaraþon 2026 – Allt sem þú þarft að vita

Laugardaginn 22. ágúst 2026 fer fram Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka, sem er stærsta hlaupahátíð Íslands og ein stærsta og mikilvægasta fjáröflun Ljóssins.

Hér verður farið yfir öll helstu og mikilvægustu atriðin sem tengjast þessum stóra og skemmtilega degi hvort sem þú ætlar að hlaupa, labba, klappa, heita á hlaupara eða taka þátt í skemmtideginum.

HLAUPIÐ FER FRAM 22. ÁGÚST, 2026

Lagt er af stað á mismunandi tímum eftir því hvaða vegalengd þú tekur þátt í.

Dagskrá hlaupadags er eftirfarandi:

  • 08:15 Keppnisflokkur í maraþoni og hálfmaraþoni
  • 08:45 Almennur flokkur í maraþoni og hálfmaraþoni
  • 09:30 Keppnisflokkur í 10 km
  • 10:00 Almennur flokkur í 10 km og skemmtiganga í 10 km
  • 12:00 Skemmtiskokk

TAKTU ÞÁTT Í REYKJAVÍKURMARAÞONINU – Á ÞÍNUM FORSENDUM

Reykjavíkurmaraþonið Íslandsbanka er meira en bara íþróttaviðburður, það er samfélag í hreyfingu. Hér færðu tækifæri til að sameina eigin heilsubætandi markmið við það að leggja góðu málefni lið. Með því að hlaupa eða ganga fyrir Ljósið styður þú við þá sem eru að endurheimta líf sitt eftir krabbamein og aðstandendur þeirra.

Allir geta tekið þátt! Þú þarft ekki að hlaupa hratt eða langt til að skipta máli, það er þátttakan sem skiptir öllu. Hvort sem þú gengur, hleypur eða skokkar, þá ertu að breyta lífi, bæði þínu eigin og annarra.

HVERNIG SKRÁI ÉG MIG OG SAFNA ÁHEITUM FYRIR LJÓSIÐ?

Skráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2026 er hér.

Veldu þá vegalengd sem hentar þér :

  • Maraþon
  • Hálfmaraþon
  • 10 KM
  • Skemmtiskokk (3 KM eða 1,7 KM)

Þegar þú ert búin að skrá þig í hlaupið sjálft þá getur þú valið að hlaupa fyrir góðgerðarmál og safnað áheitum.

Hér eru mjög góðar leiðbeiningar skref fyrir skref hvernig þú skráir þig.

AF HVERJU ÆTTI ÉG AÐ HLAUPA FYRIR LJÓSIÐ?

Þú þarft ekki að vera hlaupari til þess að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu. Allir geta verið með, valið sér vegalengd sem hentar og farið á sínum hraða.

Í gegnum árin hefur Reykjavíkurmaraþonið verið okkur ómetanlegt afl, bæði fjárhagslega og samfélagslega. Í fyrra söfnuðum við svo miklu að við gátum fjármagnað nýja húsnæði Ljóssins við Gylfaflöt í Grafarvogi, takk aftur fyrir hlauparar og stuðningsfólk. Nú stöndum við frammi fyrir næsta stóra skrefi og söfnum fyrir tækjum og búnaði í nýja húsnæðið. Því skiptir ykkar stuðningur gríðarlega miklu máli!

HVERNIG GET ÉG STYRKT HLAUPARA Í REYKJAVÍKURMARAÞONINU?

Áheitasöfnun fer fram inn á hlaupastyrkur.is, nákvæmar leiðbeiningar má finna hér.

PEPPSTÖÐ LJÓSSINS

Peppstöð Ljóssins verður á sama stað og undanfarin ár til móts við JL húsið sem er á horni Hringbrautar og Ánanaustar. Það eru allir hjartanlega velkomnir að koma og peppa með okkur, við lánum öllum peppurum boli sem verða á staðnum. Einnig erum við með áhöld til að klappa með, en við hvetjum þá sem geta að mæta með hristur, trommur eða annað sem gæti nýst vel.

Við gerum ráð fyrir að fyrstu hlauparar í hálfu og heilu maraþoni séu að koma framhjá okkur um kl.9:00 og fyrstu hlauparar í 10km hlaupi um kl. 10.00.

FIT&RUN

Ljósið tekur þátt í Fit&Run skráningarhátíð fyrir Reykjavíkurmaraþonið.

Ljósið verður á Fit&Run með sýningarbás dagana 20.-21.ágúst, fimmtudag kl. 14:00–20:00 og föstudag kl. 14:00–20:00. Þangað koma hlauparar og sækja til okkar bolina sína en öll sem hlaupa fyrir Ljósið fá hlaupabol merktan Ljósinu.

Þau sem hlaupa fyrir Ljósið eru hvött til að líta við hjá okkur og fá bol merktan Ljósinu.

Sýningin fer fram í Laugardalshöll í tvo daga:
Fimmtudag kl. 14:00–20:00 og föstudag kl. 14:00–20:00.

SKEMMTIDAGUR FYRIR REYKJAVÍKURMARAÞONIÐ

Þriðjudaginn 11. ágúst ætlum við að hafa skemmtilegan dag í Ljósinu þar sem einstaklingar og hópar geta komið saman og skreytt boli, derhúfur og skilti fyrir Reykjavíkurmaraþonið 22. ágúst!

  • Tími: kl. 13:00-16:00 (það má mæta hvenær sem er á þeim tíma)
  • Staðsetning: Ljósið
  • Verð: Ókeypis

Endilega skráið ykkur hér.