Lokað verður í Ljósinu mánudaginn 1. september og þriðjudaginn 2. september vegna starfsdaga starfsfólks. Við opnum aftur miðvikudaginn 3. september samkvæmt stundaskrá. Starfsfólk Ljóssins nýtir þessa daga til endurmenntunar og skipulags fyrir komandi önn. Við hvetjum þjónustuþega til þess að njóta þessara daga og huga vel að líkama og sál. Við minnum á að hægt er að leita upplýsinga um
Jafningjahópur fyrir konur 46 ára og eldri, hittist að þessu sinni þriðjudaginn 9.september kl. 13:00 við kaffi Flóru í Grasagarðinum. Rósa Sigrún Jónsdóttir sem kennt hefur myndlist í Ljósinu mun taka á móti okkur og segja okkur frá sýningunni Ofurblómin blómstra sem hún hefur sett í garðinum. Á eftir fáum við okkur huggulegt kaffi á Flóru. Vinsamlegast skráið þátttöku í
Kæru vinir, Við erum í skýjunum eftir frábæra skráningahátíð í Fit&Run og svo maraþondaginn sjálfan! Mikið var gaman að hitta svona mörg ykkar á klappstöðinni og önnur á hlaupum! Maraþondagurinn hófst snemma hjá okkur að vanda á laugardag þegar starfsfólk Ljóssins stillti upp fyrir árlegu klappstöðina JL húsið. Gríðarlegur fjöldi kom við og hjálpaði okkur við að klappa og fastagestir
Kæru vinir, við erum spennt fyrir afmælisviðburðum Ljóssins en svo virðist sem nýja afgreiðslukerfið sé enn spenntara. Í einhverjum tilvikum hefur kerfið sent út ótal textaskilaboð samtímis til að minna á sama viðburðinn. Það er af hinu góða að fá áminningarskilaboð en við biðjumst innlegrar afsökunar á ónæðinu sem fylgir því að fá fleiri en ein skilaboð í einu að
Í ár tekur einstakur hópur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu með fallegan tilgang: Að hlaupa fyrir Birtu Björk, vinkonu þeirra sem hefur staðið frammi fyrir alvarlegum veikindum. „Við vorum nokkur búin að plana að hlaupa í ár og kom ekkert annað til greina en að hlaupa fyrir hana eftir þær fréttir sem við fengum í nóvember síðastliðnum,“ segir hópurinn. Þau eru nánir
Saga Elínar Ólafar úr Ljósinu Þegar Elín Ólöf greindist með brjóstakrabbamein í nóvember 2024 leit hún á veikindin sem tímabundið stopp. „Ég ætlaði svosem ekki að nýta mér þjónustuna í Ljósinu,“ segir hún heiðarlega. „Ég hélt að þetta yrði lítið mál – bara aðgerð og svo aftur í vinnuna.“ En það fór á annan veg. Það sem virtist fyrst eiga
Ljósið er 20 ára og af því tilefni hefur verið sett saman einstök pop-up dagskrá í ágúst og september – tímar sem spretta fram eins og blóm á sumri og bjóða þátttakendum að staldra við, tengjast og njóta. Bak við dagskrána stendur Hólmfríður Einarsdóttir, iðjuþjálfi en hún er ein af þeim sem lagt hefur sál og skapandi kraft í skipulagningu
Gyða Jónsdóttir greindist með krabbamein í vinstra brjósti snemma árs 2023. Það var mikið högg – en á þeirri vegferð sem tók við fann hún að styrkur og stuðningur eru ómetanleg. Haustið 2023, þegar hún var nýbúin með lyfjameðferð og stóð frammi fyrir geislameðferð, ákvað hún að leita í Ljósið – þar sem uppbygging, hlýja og fagleg þekking tóku við.
Saga Elsu Lyng úr Ljósinu Þegar Elsa Lyng Magnúsdóttir greindist með brjóstakrabbamein þann 17. maí 2024 tók við krefjandi og óviss vegferð sem reyndi bæði á líkama og sál. Hún þurfti að gangast undir aðgerð þar sem hægra brjóst var fjarlægt og eitlar teknir vegna meinvarpa. Ferlið var átak en Elsa stóð ekki ein — frá fyrstu stundu stóð Ljósið
Kæru vinir, Vegna tæknilegrar bilunar er ekki hægt að hringja til okkar sem stendur. Unnið er að viðgerð. Endilega sendið okkur póst á mottaka@ljosid.is á meðan á þessu stendur – við svörum um hæl! Kveðja, Starfsfólk Ljóssins