Fræðsla

Öll dagskrá Ljóssins stuðlar að því að nýta nærumhverfi og gera fólk sjálfbært í sinni endurhæfingu. Það auðveldar fólki að yfirfæra það sem það lærir í Ljósinu í sitt daglega líf.

Til viðbótar við þá endurhæfingu sem er í boði í Ljósinu leitumst við við að miðla í stafrænu formi greinum, myndum og myndböndum sem gagnast geta krabbameinsgreindum og aðstandendum.

Matur og heilsa

Rannsóknir sýna að með næringarríku og fjölbreyttu fæðuvali í hæfilegu magni er hægt að draga úr líkum á krabbameini og öðrum sjúkdómum. Þannig gegnir næring mikilvægu hlutverki þegar kemur að forvörnum en er ekki síður mikilvæg í tengslum við meðferð og endurhæfingu.

Hvað er endurhæfing

Það er oft mikið áfall að greinast með krabbamein og veikindin geta haft margvísleg áhrif á daglegt líf. Ljósið býður upp á fjölbreytta þjónustu og stuðning í kjölfar krabbameinsgreiningar, fyrir þá sem glíma við sjúkdóminn, og aðstandendur þeirra.

Fjölskyldan og krabbamein

Þegar fjölskyldumeðlimur greinist með krabbamein hefur það áhrif á fjölskylduheildina. Krabbamein getur ógnað tengslum, samskiptum, hlutverkum, valdastöðu og heilindum innan fjölskyldunnar.

Hvert má leita?

Það er mikið áfall fyrir alla fjölskylduna þegar fjölskyldumeðlimur greinist með krabbamein. Hér er hægt að finna ýmsa fræðslu og leiðbeiningar auk upplýsinga um hvert hægt sé að leita.

Daglegt líf og iðja

Greinar, fræðsla og heimavinna frá iðjuþjálfum, sálfræðingum og fleiri fagaðilum í Ljósinu.

Handverk

Leyfðu ímyndunaraflinu og sköpunarkraftinum að fá pláss heima fyrir

Hollusta í matargerð

Snillingarnir í eldhúsi Ljóssins settu saman nokkur lauflétt myndbönd til að hvetja til hollari matargerðar heima fyrir

Líkamleg endurhæfing heima

Taktu á því heima í stofu með þessum einföldu æfingum frá þjálfarateymi Ljóssins

Jóga og teygjur

Hér má finna góðar jógaæfingar sem henta heima fyrir

Hér að neðan má finna aukaefni frá fleiri aðilum

Baujan

Námskeið um tilfinningar og sjálfstyrkingu

Vefsíða um lungnakrabbamein

Að þessari vefsíðu kemur fjöldi lækna og hjúkrunarfræðinga sem hafa sérhæft sig í meðferð lungnakrabbameins og einnig fulltrúar Sjúklingasamtaka lungnakrabbameinssjúklinga.