Aðalfundur Ljóssins verður haldinn 19 apríl nk. kl. 16:30 að Langholtsvegi 43, 104 Rvk. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Hvetjum alla félagsmenn til að mæta Í tilefni af 5 ára afmæli Ljóssins verður kaffi og terta. Með kveðju Stjórn Ljóssins
Gleðilega páska Vonum að þið eigið ljúfa og góða páskahelgi. Við opnum aftur þriðjudaginn 26 apríl. Það er hægt að panta minningarkort á heimasíðunni og verða þau send fyrsta vinnudag eftir páska.
Við höfum nú gert samning við Skeljung þar sem þeir gefa ykkur 3 krónur í afslátt af hverjum lítra en Ljósið fær 2 krónur til að safna fyrir varanlegu húsnæði. Lyklarnir eru hérna hjá okkur í Ljósinu svo endilega komið og sækið ykkur lykla. Má einnig taka fyrir alla fjölskylduna og vini. Því fleiri lyklar sem
Námskeið Ljóssins Skráning hafin í síma 561 3770 Karlmenn og krabbamein fræðslufundir Vinsæl námskeið sem miða að auknum skilningi og þekkingu á breytingarferli sem verður í lífi karlmanna sem greinast með krabbamein. Umsjón: Matti Ósvald heilsufræðingur, gestafyrirlesarar eru geðlæknar,krabbameinssérfræðingur sjúkraþjálfarar og fleiri. Hefst miðvikudaginn 7 apríl 17:30-19:00, 8 skipti Námskeið fyrir nýgreinda Ætlað þeim sem greinst hafa
Solla himneska kemur til okkar á föstudaginn nk 26 febrúar. kl: 10-12. Hún ætlar að fræða okkur um ofurfæði og kenna aðferðir við að búa til eitthvað gómsætt úr hluta af þessari fæðu. Sjáumst hress og kát Ofurfæði, hvað er það?
Það er margt spennandi framundan hjá okkur. Námskeið fyrir nýgreinda: Að virkja eigin kraft (8 vikur) hefst aftur mánudaginn 12. apríl kl 10-12. Námskeiðið hefur notið mikilla vinsælda og gefið þátttakendum mikið. Er ætlað þeim sem greindust á sl einu og hálfa ári. Umsjón: Magnea B. Jónsdóttir, sálfræðingur. Skráning hafin. Námskeið í Heilsueflingu (9 vikur í fyrirlestrarformi) hefst miðvikudaginn 7 apríl kl.
Fræðslufundur um Kynlíf og krabbamein Þriðjudaginn 2. mars kl. 20:00-22:00 býður Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein, upp á fræðslufund um kynlíf og krabbamein. Farið verður yfir það hvernig krabbameinsmeðferð getur haft áhrif á kynlíf ungs fólks, líkamsímynd og margt fleira sem við höfum e.t.v. ekki kjark til að tala um. Fyrirlesarar eru Kraftsfélagarnir Hildur Björk Hilmarsdóttir, viðskiptafræðingur
Ljósið fer nú aftur af stað með styrkjandi námskeið fyrir börn og ungmenni sem eiga foreldri, systkini, ömmu, afa eða annan aðstandenda sem hefur greinst með krabbamein. Námskeiðið stuðlar að jákvæðri uppbyggingu og er mikið unnið með lífsgleðina í gegnum skemmtileg verkefni. Aðstandandi fylgir barninu í fyrsta