Orlofsviku Bergmáls sem fara átti fram 16. – 23. september næstkomandi hefur verið aflýst. Frekari upplýsingar má nálgast hjá Bergmáli í tölvupósti bergmal@simnet.is eða í síma 587-5566.
Á dögunum barst Ljósinu veglegur styrkur frá afkomendum Ingibjargar Erlu Ásgeirsdóttur sem var virk í endurhæfingunni okkar. Styrkurinn rennur sérstaklega í leirlistina en Erla hafði mikla unun af því að geta sótt og stundað það handverk. „Það hjálpaði henni að eiga áhugamál á meðan krabbameinsferlinu stóð. Við þökkum kærlega fyrir mömmu hönd.“ segir í kveðju frá börnum Erlu. Við þökkum
Undanfarin ár hafa verið starfræktir jafningjahópar hér í Ljósinu og verður árið í ár engin undantekning. Markmið jafningjahópanna er að njóta samverunnar og gera eitthvað skemmtilegt saman. Hóparnir hittast mánaðarlega á þriðjudögum frá kl.13:30-16:00. Konur 45-59 ára hittast fyrsta þriðjudag í mánuði og 60 ára og eldri hittast annan þriðjudag í mánuði. Næstu viðburðir: Konur 45-59 ára: Þriðjudaginn 7. september
Á morgun, föstudaginn 3. september, fer af stað að nýju „Strákamatur“ en þá hittast karlmenn á öllum aldri í Ljósinu, borða saman og ræða málin í næði. Nauðsynlegt er að skrá sig í móttöku Ljóssins í síma 561-3770 Við bendum einnig á að karlmenn 45 ára og yngri hittast einnig í hádeginu á mánudögum klukkan 12:00.
Fræðslunámskeið fyrir fólk á öllum aldri búsett á landsbyggðinni, sem hefur nýlega verið greint með krabbamein hefst fimmtudaginn 9. september næstkomandi. Námskeiðinu er ætlað að bjóða upp á fræðslu og bjargráð sem nýtast til að stuðla að virkni og bæta líðan í kjölfar krabbameinsgreiningar (samhliða eða í kjölfarið af inngripi vegna krabbameins). Jafningjastuðningur er ekki síður mikilvægur hluti af þátttökunni.
Fimmtudaginn 16. september klukkan 12:00 stendur golfvöllurinn á Kiðjabergi fyrir skemmtilegu golfmóti fyrir karlmenn í Ljósinu. Mótið er opið öllum, sama hvaða færni þeir búa yfir í íþróttinni, en spilað verður tveggja eða fjögurra manna Texas fyrirkomulag sem hentar öllum reynslustigum. Mótið er ókeypis og þeir sem ekki eiga kylfur geta fengið lánað hjá golfklúbbnum að kostnaðarlausu. Áður en haldið verður út á
„Við erum ekki að fara að losna við hvor aðra þó við séum orðnar nokkurn veginn heilbrigðar“ heyrist hátt og snjallt í handverkssal Ljóssins á vindasömum miðvikudegi í ágúst. Þangað er kominn vinkonuhópurinn „Lubbarnir“ sem samanstendur af níu galvöskum konum sem kynntust á námskeiði fyrir nýgreindar konur í Ljósinu haustið 2020. Frá því þær kynntust hafa þær verið mjög samstilltar
Starfsfólk Ljóssins hefur nú lagt lokahönd á glæsilega stundaskrá sem tekur gildi 1. september 2021. Við hvetjum alla til að skoða vel hvað er í boði en verið er að hringja í alla sem skráðir eru á biðlista á námskeið og í handverk. Í haust fara af stað nýjir dagskrárliðir í líkamlegri endurhæfingu; Þolþjálfun á mánudögum og miðvikudögum klukkan 12:00
Frá 1. september breytist opnunartími Ljóssins á föstudögum. Lokað verður klukkan 14:00. Opnunartími Ljóssins verður því sem hér segir: Mánudagar: 08:30 – 16:00 Þriðjudagar: 08:30 – 16:00 Miðvikudagar: 08:30 – 16:00 Fimmtudagar: 08:30 – 16:00 Föstudagar: 08:30 – 14:00
Vefverslunin cbdreykjavik.is býður öllum þjónustuþegum Ljóssins 20% aflátt í með afsláttarkóðanum Ljosidokkar. Fyrirtækið, sem er í eigu Karlottu Bridde og Arnþórs Haukdal, sérhæfir sig í snyrtivörum sem innihalda CBD og einsetja sér að bjóða aðeins upp á vörur í hæsta gæðaflokki.