Á laugardaginn lýsum við upp Esjuna saman

Kæru Ljósavinir og Ljósberar,

Á laugardaginn koma mörg ljós saman í Esjuhlíðum. Hinn árlegi Ljósafoss Ljóssins fer þá fram, og við vonum innilega að þú og þínir komið með.

📅 Laugardaginn 14. Nóvember
📍 Esjurætur
🕒 Mæting kl. 15:30 – lagt af stað kl. 16:00
💛 Þátttaka er ókeypis

Á þínum hraða- þú ræður ferðinni. Það er engin krafa um að ganga alla leið upp á topp til að vera með. Gakktu eins langt og þér líður vel með, á þínum hraða, og vertu hluti af ljósafossinum. Þorsteinn Jakobsson, Fjalla-Steini, leiðir gönguna eins og undanfarin ár.

Sjóvá styrkir Ljósið um 2.000 kr. fyrir hvern sem mætir og það munar um hvert og eitt ykkar. Sjóvá, sem hefur verið öflugur samstarfsaðili Ljósafossins, styrkir Ljósið um 2.000 krónur fyrir hvern þann sem mætir við Esjurætur. Stuðningurinn rennur til nýs heimilis Ljóssins og hjálpar okkur að skapa hlýlegt og gott umhverfi fyrir öll sem sækja til okkar.

Ljós, von og samstaða Ljósafossinn hefur verið haldinn frá árinu 2009. Hugmyndina á Fjalla-Steini, sem gekk þá sjö ferðir upp Esjuna og tileinkaði þær Ljósinu. Síðan hefur hann orðið að kærkominni hefð á dimmasta tíma ársins. Fólk gengur upp fjallið og lýsir svo upp hlíðarnar með höfuðljósum á leiðinni niður.

Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Ljóssins:
„Ljósafossinn okkar er táknrænn því þar er ljósið borið í gegnum svartasta myrkrið af þeim sem hafa burði til, rétt eins og Ljósið gerir á hverjum degi fyrir þá sem til okkar sækja þjónustu.“

Ljósafossinn er miklu meira en fjallganga. Hann minnir okkur á að hvert ljós skiptir máli, og þegar mörg ljós sameinast verður til foss vonar og samstöðu.
Taktu höfuðljósið með, klæddu þig vel og komdu með vini, fjölskyldu eða vinnufélaga.

Hlökkum til að sjá þig á laugardaginn!

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.