Við höfum fundið fyrir svo mikilli hlýju og eftirvæntingu síðustu mánuði og nú er biðin loksins á enda. Armböndin og hálsmenin sem við hönnuðum í samstarfi við Hlín Reykdal eru komin aftur í hús!
Í þetta sinn bætist líka við skemmtilega nýjung. Við bjóðum núna einnig upp á fínlegra armband með nýrri festingu, sem kemur einstaklega fallega út eitt og sér, en okkur finnst líka ótrúlega smart að para fína og grófa armbandið saman.
Við höfum einnig gert smávægilega breytingu á hálsmeninu og er keðjan nú aðeins mýkri og fínlegri.
Aukið vöruúrval: Nú getur þú keypt fallegt hjarta, broskarl, maríuerlu eða annað fallegt charm til að bæta við á þitt armband eða hálsmen.








Salan á skartinu hefur farið fram úr okkar björtustu vonum. Með hverju keyptu skarti styður þú við endurhæfingu í Ljósinu og hjálpar okkur að gera nýja heimilið okkar enn betra fyrir fólkið sem leitar til okkar.
Takk fyrir hlýjuna og stuðninginn, og takk fyrir að bera skart sem skiptir máli.
Tryggðu þér eintak á meðan birgðir endast! Hægt er að skoða skartið hér: Skart sem skiptir máli – Ljósið x Hlín Reykdal – Ljósið
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






