Bergmál líknarfélag hefur ákveðið að bjóða þjónustuþegum Ljóssins að koma aftur í slakandi dvöl á Sólheimum, Grímsnesi, vikuna 12.-16. október. Þau voru svo ánægð með hópinn sem kom í ágúst að þau vilja endilega endurtaka leikinn fyrir fleiri.
Gist er í tveggja manna herbergjum (12 herbergi eru í boði) og er dvölin (gisting og matur) þjónustuþegum að kostnaðarlausu.
Þetta er tilvalið tækifæri til að njóta, hvílast, vera með skemmtilegu fólki, fara í gönguferðir og slaka á.
Skráning er hafin í móttöku Ljóssins og í síma 561-3770
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






