Garðpartý safnaði 820.150 kr. til styrktar Ljósinu

Það eru til einstaklingar sem leggja hjarta sitt og sál í að láta gott af sér leiða, Jón Þorsteinn Sigurðsson og Hákon Arnar Jónsson eru dæmi um það.

Þann 30. júní opnuðu Jón og Hákon heimilið sitt og buðu gestum og gangandi í garðpartý þar sem safnað var fyrir Ljósið. Á þessari einu kvöldstund söfnuðust 820.150 kr., sem munu nýtast einstaklega vel í uppbygginguna á nýja húsnæði Ljóssins.

Kvöldið var fullt af hlýju, gleði og samveru. Gestir nutu glæsilegra tónlistaratriða þar sem Sérfræðingar að sunnan, Tindatríóið og Guðný Árný komu fram. Einnig var boðið upp á grillaðar pylsur og drykki. Allt framlag tónlistarfólks og annarra sem komu að kvöldinu var gefið af hlýhug.

Við hjá Ljósinu erum innilega þakklát Jóni fyrir þetta fallega framtak, sem og öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum eða mættu og styrktu Ljósið. Samstaða ykkar skiptir sköpum, hjartans þakkir fyrir okkur.

Á myndinni eru Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Ljóssins, og Jón Þorsteinn Sigurðsson. 

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.