Nemendur Víkurskóla styrkja Ljósið um 900.000 kr

Í gær fengum við yndislega heimsókn frá Þuríði, skólastjóra Víkurskóla, Jóni Bjarti, Hörpu, Ísaki Smára og Ólafi Vilhelm, fulltrúum nemenda í skólaráði Víkurskóla. Þau komu færandi hendi og afhentu Ljósinu veglegan styrk að upphæð 900.000 kr.

Upphæðinni var safnað á Góðgerðardegi Víkurskóla þann 6. júní, sem var í ár haldinn í annað sinn. Í byrjun var verkefnið kynnt öllum nemendum og svo var kosið að styrkja Ljósið.

Nemendurnir höfðu tvo daga til að undirbúa hvernig þeir vildu leggja sitt að mörkum og á deginum voru nemendur með fullt af skemmtilegum stöðvum m.a. listverk eftir nemendur, spil sem nemendur höfðu hannað frá grunni, kökusala, bingó, lukkuhjól, kökukast í kennara og herraklipping.

Á deginum sjálfum söfnuðust um 800.000 kr. og foreldrafélag skólans bætti svo við upphæðina og endaði heildarstyrkurinn í 900.000 kr.

Við hjá Ljósinu viljum hjartanlega þakka nemendum Víkurskóla, foreldrafélaginu og öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum. Stuðningur sem þessi er afar dýrmætur fyrir okkur í Ljósinu.

Hjartans þakkir fyrir ykkar framlag og hlýhug.

      

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.