Skráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2026 er hafin

Nú geta allir þeir sem ætla að hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkur maraþoninu í ár skráð sig inn á Hlaupastyrkur.is

Áheitasöfnun í gegnum maraþonið hefur verið mikilvæg tekjuöflun fyrir starfsemi Ljóssins en söfnunarleiðin hefur til að mynda gert okkur kleift að fella niður allan kostnað krabbameinsgreindra við líkamsrækt, námskeið, fræðslu og margt annað.

Í fyrra var metsöfnun Ljóssins frá upphafi! Ljósið var eitt af þremur söfnunarmestu góðgerðarfélögum Hlaupastyrks í maraþoninu. Þessi stuðningur var okkur afar dýrmætur og m.a. hjálpaði Ljósinu að geta fært sig í stærra húsnæði.

Reykjavíkur maraþonið er eftir tæplega þrjá mánuði eða 22. ágúst. Núna er kominn tími til þess að henda sér í hlaupaskóna, nýta góða veðrið og styrkja gott málefni í leiðinni.

Stuðningurinn ykkar skiptir okkur ótrúlega miklu máli! Hér að neðan eru nokkrar skemmtilegar myndir frá því í fyrra.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.