Í maí fengum við góða heimsókn frá Rótarýklúbbnum Reykjavík-Austurbær, næstelsta rótarýklúbbi Reykjavíkur. Klúbburinn leggur áherslu á að láta gott af sér leiða og ákvað af því tilefni að styrkja Ljósið.
Regína Björk Jónsdóttir, verkefnastjóri Ljóssins, tók við styrknum og fallegum blómvendi frá Ólafi Stephensen, forseta klúbbsins, og tveimur frábærum stjórnarkonum.
Hjartans þakkir fyrir stuðninginn og hlýhuginn til okkar í Ljósinu!

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






