Aðalfundur Ljóssins 2026 – ný andlit í stjórn og ársskýrsla yfirfarin

Á aðalfundi Ljóssins þann 7. maí var farið yfir starfsemi og ársreikninga liðins starfs ár. Einnig voru rædd helstu mál sem varða framtíð Ljóssins, þar á meðal samningaviðræður og nýtt húsnæði Ljóssins.

Stjórnarkosningar fóru fram og var Brynjólfur Eyjólfsson endurkjörinn formaður. Brynjólfur Stefánsson og Svanhildur Sigurðardóttir sem hafa setið í stjórn Ljóssins undanfarin ár, láta nú af störfum. Ljósið þakkar Brynjólfi og Svanhildi innilega fyrir þeirra mikilvæga framlag og vel unnin störf í þágu starfseminnar. Í þeirra stað tekur sæti í stjórn Katrín Júlíusdóttir.

Katrín er fyrrverandi ráðherra og starfar í dag sem ráðgjafi hjá Athygli ehf. Hún er fyrrum þjónustuþegi Ljóssins og kemur inn með reynslu og þekkingu úr stjórnsýslu en hún sat á Alþingi í fjögur kjörtímabil og sinnti ráðherraembættum á því tímabili. Eftir að hún hætti í framlínu stjórnmálanna árið 2016 var hún framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu í sex ár áður en hún snéri sér alfarið að skrifum og ráðgjöf. Hennar helstu verkefni á sviði ráðgjafar lúta helst að stjórnsýsluverkefnum ásamt því að verkefnastýra uppbyggingar- og umbreytingaverkefnum þar sem tengja þarf saman ólíka aðila.

Við hjá Ljósinu fögnum því innilega að fá Katrínu til liðs við okkur og hlökkum til samstarfsins fram undan!

Núverandi stjórn Ljóssins er þannig skipuð:

  • Brynjólfur Eyjólfsson, viðskiptafræðingur
  • Hákon Jónsson, viðskiptafræðingur
  • Ásta Einarsdóttir, lögfræðingur
  • Ólöf Kristjana Bjarnadóttir, krabbameinslæknir

Varastjórn

  • Katrín Júlíusdóttir, f.v. ráðherra og ráðgjafi

Hér fyrir neðan má nálgast ársskýrslu Ljóssins 2026

Ársskýrslur Ljóssins

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.