TAKK TAKK TAKK

Ljósið x Hlín Reykdal

Salan hefur farið fram úr okkar björtustu vonum og við erum orðlaus yfir viðtökunum.

Þetta hefur verið á allan hátt mjög fallegt samstarf og verður Hlín Reykdal ekki lofuð nægilega fyrir sína vinnu og framlag með þessu skarti sem skiptir okkur öll máli og mun allur ágóði renna óskiptur til Ljóssins og verður nýttur til uppbyggingar á nýjum tækjasal.

En það hafa svo sannarlega margir lagt okkur lið á einn eða annan hátt og við viljum svo sannarlega klappa þau upp hér.

Takk kærlega Tjörvi, Sindri, Snorri og Ísak fyrir að skila af ykkur einstaklega fallegu kynningarmyndbandi þar sem þið náðuð að fanga falleg augnablik og sögu Hlínar. Fagmenn fram í fingurgóma!

Hörður Sveinsson ljósmyndari takk fyrir fallegar myndir sem sýna skartið okkar á glæsilegu fyrirsætunum okkar. Þú ert sá ljúfasti og besti í bransanum!

Takk kæru Axel Friðriks og Eyvindur Einars hjá StudioFin, fyrir frábært samstarf, glæsilega grafík og hröð vinnubrögð,  þið eru svo sannarlega komnir á jólakortalistann okkar!

Talandi um fyrirsæturnar okkar þá voru þær úr efstu hillunni og við erum svo þakklát fyrir að þið vilduð leggja okkur lið. Takk Hugrún Geirsdóttir (ásamt yndislegum dætrum), Sif Sveinsdóttir, Kristín Gunnarsdóttir, Linda Ben, Sigrún Vikar, Hildur Ben, Álfgrímur, Unnsteinn Manuel, Logi Pedro, Vigdís Harðardóttir, Jóhanna Vigdís Þórðardóttir, Hlín Reykdal, Elísabet Árna, Haraldur Sigfús Magnússon- þið eruð frábær!

Það þarf svo auðvitað að passa upp á að öll séu nú sæt og fín fyrir framan myndavélina og þar var landsliðið í hár, sminki og stíleseríngu á bak við tjöldin. Takk Hafdís Kristín, Lára Bryndís, Karítas Ósk Ahmed og Hulda Halldóra Tryggvadóttir- þið eruð bestar!

Takk Björk Guðmundsdóttir fyrir rödd Ljóssins- þið þekkið hana á röddinni!

Kaffibrennslan og Eik fasteignafélag lögðu sitt af mörkum með tökustað og afnot af rými. Takk fyrir ykkur!

Þessar fallegu auglýsingar í prenti og myndbandi birtast ekki að sjálfum sér fyrir augum ykkar og kunnum við Datera miklar þakkir fyrir sína ráðgjöf og miðlunum sem hafa verið okkur mjög góðir, Mbl, Vísir, Viðskiptablaðið, RÚV, SÝN og K100.  Takk fyrir ykkur!

 

Við héldum fallegan viðburð þriðjudaginn 12.maí þar sem við ýttum herferðinn af stað og hófum söluna á skartinu og frumsýndum auglýsinguna.

Þar ber fyrst að þakka Landsbankanum fyrir að lána okkur sín fallegu húsakynni og aðstoða okkur á svo margan hátt t.d. með því að leggja til þjóna og aðbúnað. Extra takk á Hildi, Vigdísi og Óskar- þið eruð gjöf en ekki gjald!

Það fór enginn þyrstur heim og styrkti Ölgerðin okkur ríkulega með drykkjum og 17 Sortir pössuðu upp á að allir væru passlega sætir líka með fallegu sætabitunum sínum.

Það er allt í blóma hjá Svönu hjá Svart á hvítu og hjálpaði hún okkur að gera fallegt rými enn fallegra með fallegu blómaskreytingunum sínum.  Takk kæra blómarós fyrir þig!

 

Segðu sís! Takk frábæru Sirrý og Atli hjá Areum fyrir að fanga fallegu augnablikin á viðburðinum. Þið eruð frábær!

Sigurjón ljósmyndarinn okkar lipri sem læðist um og smellir mynd af öllum sem birtast svo bara allt í einu á miðlunum. Þú ert og verður alltaf á speed dial!

Við hefðum ekki getað selt allt þetta fallega Ljósacharm nema með Kærleikskonunum okkar þeim Sollu, Herdísí, Elsu og Ölmu ásamt Sif og Selmu. Takk fyrir ykkur einstöku vinkonur og þið getið verið óhræddar við að setja „sölukona“ fyrir aftan nafnið ykkar á ja.is!

 

Að lokum takk A4, Prentmet, allt starfsfólk Ljóssins, öll sem eru búin að kaupa skart og ætla að kaupa skart.

 

Til að kaupa skart sem skiptir máli mælum við með að næla þér í eintak sem fyrst áður en allt selst upp. Skartið er meðal annars fáanlegt hjá Ljósinu, á vefsíðu Ljóssins ljosid.is, hlinreykdal.com, Kiosk og Mebu sem við kunnum miklar þakkir fyrir að leggja okkur lið.

 

Saman erum við til staðar fyrir okkar mikilvægasta fólk.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.